Innlent

Leik- og grunnskóli undir sama þaki í Úlfarsárdal

Úr safni.
Úr safni.
Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum í gær að stofna skóla í Úlfarsárdal sem sameinar undir einu þaki leikskóla og grunnskóla ásamt frístundastarfi fyrir börn frá eins árs aldri til tólf ára. Áherslur í starfseminni verða listir og lýðheilsa, umhverfismennt og læsi.

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sér mörg tækifæri opnast með stofnun nýja skólans í Úlfarsárdal. „Þessi tilraun, að reka saman leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili undir einu þaki miðar að því að auka sveigjanleika í skólastarfi og það sem er ekki síst mikilvægt; skóladagurinn verður heildstæðari hjá börnunum. Þetta fyrirkomulag eykur auk þess hagkvæmni í rekstri og mun vonandi nýtast okkur vel við að móta framtíðarskipulag í skólastarfi í Reykjavík," er haft eftir Hönnu Birnu á vef Reykjavíkurborgar.

Þar segir að einn faglegur og rekstrarlegur stjórnandi verði ráðinn að skólanum, sem skipuleggur innra starf samkvæmt lögum, reglugerðum og námskrám fyrir leik- og grunnskóla og samþykktum um rekstur frístundaheimila, í samstarfi foreldra.

Nýi skólinn mun mæta þörfum margra barna en í dag eru 65 börn úr hverfinu í leik- og grunnskólum í öðrum hverfum. Áhersla verður lögð á að íbúar, fullorðnir jafnt sem börn, hafi aðkomu að undirbúningi nýja skólans.

Skólinn tekur til starfa haustið 2010 í húsnæði leikskólans í Úlfarsárdal. Þegar grunnskólahúsnæðið verður tilbúið verður það nýtt fyrir sameinaðan skóla ásamt leikskólahúsnæðinu. Frá hausti 2010 verða í skólanum nemendur frá eins árs til tíu ára og síðan bætist við einn árgangur árlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×