Sendiherra styður silfurdrengi 18. janúar 2010 06:00 Einar stendur í ströngu við að úthluta Íslendingum miða á Evrópumótið í handbolta.
Sendiherra Íslands í Austurríki, Stefán Skjaldarsson, ætlar að hvetja silfurdrengina í handboltalandsliðinu til dáða gegn Serbíu á Evrópumótinu í Austurríki á morgun. „Ég ætla náttúrulega að fara á leikinn. Hann er 150 kílómetra í burtu héðan í borginni Linz en það er ekkert mál að skreppa,“ segir Stefán, sem hefur verið sendiherra í Austurríki í þrjá mánuði. Hann telur það miklu máli skipta að vinna fyrsta leikinn ef vel á að ganga í mótinu. Ekki væri heldur verra að vinna Dani, sem eru með Íslendingum í riðli ásamt heimamönnum í Austurríki. „Ef þeir komast áfram þá komast þeir til Vínar og þá verður styttra að fara á leikina,“ segir Stefán, sem starfar einmitt í Vínarborg. Spurður segir hann það alveg óvíst hvort hann ætli að heilsa upp á landsliðsmennina fyrir leikinn gegn Serbum. „Ég vil nú helst ekki vera að trufla þá. Kannski tala ég bara við þá í klefanum eftir leik, þ.e. ef þeim gengur vel,“ segir hann í léttum dúr. Töluverð umfjöllun hefur verið um mótið í austurrískum fjölmiðlum að undanförnu og hefur Stefán fylgst grannt með gangi mála. „Þeir hafa verið með fréttir af sínu liði. Þeir hafa verið að æfa grimmt og þeim hefur gengið nokkuð vel,“ segir hann en býst við því að Austurríkismenn nái ekki að stöðva Íslendingahraðlestina. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, hefur útvegað Íslendingum um 25 miða á leikinn gegn Serbum. Fleiri ætla að mæta á leikina gegn Austurríki og Danmörku eða um 65 til 70 manns. Ekki er flogið beint til Austurríkis frá Íslandi að vetri til og því þurfa handboltaáhugamenn að fljúga til landa á borð við Frankfurt eða Kaupmannahöfn og taka þaðan lest eða nota bílaleigubíla til að komast á leiðarenda. -fb
Mest lesið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Bob Mackie er látinn Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Lífið samstarf Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira