Leita þar sem heyrist úr rústunum 18. janúar 2010 06:30 Íslenskir björgunarsveitarmenn að störfum á Haítí. Mynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg. „
Við notum mikið heimafólk til að segja okkur hvar fólk var inni þegar jarðskjálftinn reið yfir. Ef ekki eru nein skilaboð um að fólk hafi verið inni í húsum þá leitum við ekki þar,“ segir Gísli Rafn Ólafsson, stjórnandi hjá íslensku alþjóðasveitinni á Haítí. Íslenska sveitin flutti sig í gær til borgarinnar Léogane sem er um sjötíu kílómetra suðvestur af höfuðborginni Port-au-Prince og við upptök stóra jarðskjálftans á Haítí. Með Íslendingunum voru sveit frá Bretlandi og sveit frá Katar. Sveitirnar, alls um 100 manns, komu sér upp búðum á svæði friðargæsluliðs frá Srí Lanka og voru þar í nótt. „Ástandið þarna er mjög slæmt. Stór hluti húsanna er hruninn að öllu eða einhverju leyti,“ lýsir Gísli stöðunni eftir að hann flaug í gærmorgun í þyrlu yfir Léogane. „Margt fólk hefur sjálft komið sér upp eins konar búðum og notar þá dúka eða annað til að verja sig fyrir sólinni.“ Íbúar Léogane höfðu vitanlega sjálfir þegar bjargað mörgum sem voru fastir og hjálparlausir. „En við ætlum að tryggja það að það sé búið að fullleita í þessari borg seinni partinn á morgun [í dag]. Við leitum einna helst á stöðum þar sem enn heyrist í fólki innan úr rústunum,“ útskýrir Gísli sem kveður stöðuna verða endurmetna að þessu verki loknu. „Á meðan það eru verkefni eru menn hér mjög áhugasamir um að leita.“ Gísli segir alla á Haítí hafa orðið fyrir skakkaföllum. „Fólk hefur annaðhvort misst nákomna eða fjarskylda ættingja og vini. Það er stór vinna fram undan fyrir Haítí að byggja sig upp aftur.“ - gar
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira