Persónugervingar á ferð 6. október 2010 06:00 Chris Bangle fyrrverandi aðalhönnuður BMW lýsti sýn sinni á framtíðarhönnun bíla á Driving Sustainability ráðstefnunni sem fram fór á Hilton Nordica.Fréttablaðið/Stefán
Allmargir þættir þurfa að koma saman við hönnun farartækja, að því er fram kom í máli Chris Bangle, fyrrverandi aðalhönnuðar BMW-bílaframleiðandans, á Driving Sustainability ráðstefnunni í Reykjavík. Hönnuðir þurfa að horfa til þess hvaða þætti verði að hafa með, hvað sé hægt að gera, hvað þeir vilji gera og sé skynsamlegt að gera. „Til dæmis er skynsamlegt að hafa bollastatíf, þau eru nú meðal þess sem fólk býst við að sé í bílum,“ sagði hann. Framþróun í tækni segir Bangle svo breyta því sem mögulegt sé að gera, um leið hún breyti upplifun fólks af bílum sem farartækjum. Þannig sé allt önnur upplifun að aka bíl með hljóðlátum rafmótor og stiglausri hröðun en að aka drynjandi átta gata bensíntryllitæki. Bílar segir Bangle að séu að vissu marki endurspeglun á einhverjum persónueiginleikum eigendanna og það verði að hafa í huga þegar maður velti fyrir sér samgöngumáta framtíðar. Hann var fenginn til að velta upp sýn sinni á samgöngur eins og þær gætu orðið árið 2050. Bangle benti líka á að hvert farartæki tæki um 10 fermetra pláss og því kæmu upp vandamál með pláss með aukinni auðlegð og bílaeign í þriðja heiminum. Með allt þetta í huga kom Chris Bangle upp með nokkuð byltingarkennda framtíðarsýn þar sem bíllinn er nokkurs konar einmenningsumgjörð, með persónueinkennum eigandans, en vél og dekk væru staðlaðar einingar sem fólk leigði eftir því sem þörf væri á. Bíllinn yrði nokkurs konar persónugervingur (e. avatar) eigandans. Bensínstöðvar dagsins í dag fengju svo nýtt hlutverk sem viðhalds- og geymslustöðvar fyrir þá hluti sem fólk samnýtir, dekk, mótora og rafhlöður. Hvert farartæki myndi nota tvö dekk og vildu fleiri fara saman, þá væri bílpersónugervingunum smellt saman og hóað í fleiri dekk. „Einu sinni snerist framtíðarsýnin um að bílar gætu flogið. Það verður bara að koma í ljós hvort mín sýn verður raunin eða eitthvert millistig verður til, það verður bara að koma í ljós,“ sagði Chris Bangle.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira