Innlent

Nýr meirihluti á Akranesi kynntur klukkan sjö

Sveinn Kristinsson er oddviti Samfylkingarinnar á Akranesi
Sveinn Kristinsson er oddviti Samfylkingarinnar á Akranesi
Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og óháðir og Vinstri grænir munu skrifa undir stefnuyfirlýsingu nýs meirihluta Akraness klukkan 19 í kvöld. Fyrsta verkefni meirihlutans verður að auglýsa verður nýjum bæjarstjóra í samvinnu við ráðningastofu.

Í tilkynningu sem flokkarnir hafa sent frá sér segir að nýi meirihlutinn ætli fyrst og fremst að taka fjármál bæjarins til gagngerrar endurskoðunar.

„Flokkarnir eru sammála um að vinna í anda opinnar umræðu og fagmennsku. Lögð er áhersla á að sem flestir komi að umræðum og ákvarðanatöku. Á fjölþættan hátt munu flokkarnir leita eftir viðbrögðum og ábendingum bæjarbúa, s.s. með hverfafundum, opnum fundum, viðtalstímum bæjarfulltrúa og tillögum á heimasíðu bæjarins í anda skuggaborg.is. Lögð verður mikil áhersla á málefnakynningar svo að bæjarbúum gefist tækifæri til að setja sig inn í mál og hafa áhrif á niðurstöður," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×