Likir stjórnarflokkunum við gömlu kommúnistaflokkana Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. nóvember 2010 19:21
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir að stjórnarflokkarnir í ríkisstjórninni líkist meira og meira gömlu kommunistaflokkunum eftir því sem gagnrýni á stefnu þeirra eykst. Birgitta Jónsdóttir býður Lilju velkomna í Hreyfinguna. Mikil óánægja er meðal margra flokksmanna Vinstri grænna eftir flokksráðsfundinn í gær, en flokkurinn virðist skiptast í tvær fylkingar. Annars vegar eru það sem sumir hafa nefnt órólega arm flokksins, með Lilju Mósesdóttur og Ásmund Einar Daðason í broddi fylkingar og hins vegar eru þau sem sýna Steingrími J. Sigfússyni formanni flokksins aukna hollustu og fylgja forystu flokksins að málum. Þeir sem sátu fundinn í gær segja andrúmsloftið á fundinum endurspegla ástandið í flokknum, en einn fundarmanna sagði á fundinum í gær að í Vinstri grænum væru tveir flokkar. Meðal þess sem tekist var á um á fundinum var tillaga um að endurskoða fjárlögin frá grunni en henni var hafnað og vísað til þingflokksins og ríkisstjórnarinnar. Lilja Mósesdóttir alþingismaður virðist afar óánægð með niðurstöðu fundarins og segir á Facebook-síðu sinni í dag að stjórnarflokkarnir, þ.e Samfylkingin og Vinstri grænir, líkist meira og meira gömlu kommúnistaflokkunum eftir því sem gagnrýnin á forystuna aukist. Fundir verði að hátíðarsamkomum til að hylla leiðtogana og ekkert muni gerast fyrr en boðað verði til kosninga. Skilja má þessi ummæli þannig að Lilja vilji boða til kosninga. Þá veltir Lilja fyrir sér í athugasemdum á vefsíðunni hvort einhver munur sé á stefnu stjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokksins hvað varðar niðurskurð í velferðarkerfinu, afstöðunni til skuldavanda heimilanna og samstarfsins við AGS. Forystufólk í Vinstri grænum sem fréttastofa ræddi við sagði að lýðræðið í Vinstri grænum hafi sýnt sig í verki því skilyrðislaus stuðningur við ríkisstjórnina hafi verið áréttaður á fundinum í gær og það ekki í fyrsta sinn, á stuttum tíma, sem flokksforystan og ríkisstjórnin hefðu fengið slíka staðfestingu. Fréttastofa reyndi margítrekað að ná tali af Lilju í dag án árangurs. Birgitta Jónsdóttir blandaði sér í umræðuna á síðu Lilju. Í samtali við fréttastofu í dag sagði hún Lilju velkomna í Hreyfinguna, eins og fleiri sem væru í erfiðleikum innan sinna flokka. Hún sagði þó enga fundi hafa átt sér stað milli Lilju og þingmanna Hreyfingarinnar.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira