Kaffibarssjósund endaði á spítala 3. febrúar 2010 03:00 Sjósundsselskapur Kaffibarsins hittist tvisvar í viku og fer í hafið. Formaður félagsins lenti á sjúkrahúsi síðast. „
Það endaði einn á spítala síðast – ofkældist næstum því. Það var reyndar ég. Ég fór aðeins of langt út í,“ segir Karl West, formaður sjósundsselskapar Kaffibarsins. Hópurinn hittist tvisvar í viku og á mánudag endaði ferðin á því að formanninum var ekið í sjúkrabíl á spítala. „Ég ofreyndi mig – dreif ekki alveg til baka,“ segir Karl eldhress, enda búinn að endurheimta 36,8 gráðu líkamshita þegar Fréttablaðið náði í hann. Hann telur að líkamshitinn hafi farið niður í 34 gráður þegar hann komst upp úr ísköldum sjónum við illan leik. „Ég fór inn og var settur í mörg teppi og svo var hringt á sjúkrabíl. Það tók klukkutíma að ná í mig hita aftur.“ Sjósundsselskapur Kaffibarsins er um tveggja mánaða gamall hópur og samanstendur af velunnurum og starfsmönnum Kaffibarsins, sem er einn vinsælasti skemmtistaður borgarinnar. Hópurinn hittist á mánudögum og miðvikudögum og fer í samfloti frá Kaffibarnum í Nauthólsvík. „Þetta er opið félag fyrir þá sem óska. Við erum ekkert strangir,“ segir Karl og neitar því að nýir meðlimir þurfi að ganga í gegnum einhvers konar vígsluathöfn. Karl segist ekki óttast að fara aftur „í hafið“ eins og hann orðar það í kvöld. „Þetta er eins og þegar maður dettur af hestbaki, það fyrsta sem maður gerir er að fara aftur á bak,“ segir hann. „Núna þekki ég takmörk mín. Ég get tekið sirka 90 sundtök og þá er ég örmagna. Ég hlakka til og fer galvaskur út í.“ - afb
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira