Innlent

Vill kjósa til Alþingis í vor

Jón Gunnarsson vill kjósa í vor. Mynd/ Vilhelm.
Jón Gunnarsson vill kjósa í vor. Mynd/ Vilhelm.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill kjósa til Alþingis í vor. Að hans mati er núverandi ríkisstjórn ekki vaxin þeim vanda sem samfélagið stendur frammi fyrir.

„Það er skylda okkar þjóðkjörinna þingmanna að koma strax á starfhæfum meirihluta á Alþingi. Sá meirhluti verður að forgangsraða sínum verkefnum í þágu þjóðarinnar. Ný ríkisstjórn á að einbeita kröftum sínum að fáum málaflokkum s.s. almennum úrræðum gagnvart vanda heimilanna, eflingu atvinnulífs, aukinni fjárfestingu erlendra aðila í íslensku atvinnulífi, breytingum á núverandi lamandi skattheimtukerfi og niðurstöðu í IceSave málinu," segir Jón. Þetta séu þau verkefni sem þingið á að skipta sér upp í vinnuhópa til að leggja nýrri ríkisstjórn lið í að koma áfram.

Jón segir að það eigi að draga eins og kostur er úr fjárútlátum vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið og að fresta stjórnlagaþingi. Fleiri málum megi fresta. „Það er ekki réttlætanlegt að eyða milljörðum króna í slík verkefni á meðan við getum ekki brauðfætt þjóðina, skapað henni öruggt heilbrigðiskerfi og aðgang að góðri menntum. Hér verður að forgangsraða í þágu þjóðar, segir Jón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×