Boltinn er núna hjá Expressferðum 1. september 2010 05:45 Hildigunnur Hafsteinsdóttir
Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur Neytendasamtakanna, segir samtökin nú bíða viðbragða Expressferða við þeirri niðurstöðu Neytendastofu að ferðaskrifstofan hafi átt að endurgreiða að fullu pakkaferð til Berlínar. Ferðin, sem fara átti 16. apríl í vor, var felld niður þar sem flugvöllurinn í Berlín var lokaður vegna eldgoss í Eyjafjallajökli. Expressferðir gáfu farþegunum kost á nýrri ferð gegn 25 þúsund króna viðbótarframlagi eða að fá endurgreiddan þann helming kostnaðarins, um 40 þúsund krónur, sem var vegna flugsins sjálfs. Hótelgistingin var hins vegar ekki endurgreidd. Sjö farþeganna leituðu til Neytendasamtakanna sem kærðu ákvörðun Expressferða fyrir hönd eins þeirra. Hildigunnur bendir á að Neytendastofa úrskurði ekki um fjárhagslegar kröfur einstaklinga og geti því ekki lagt fyrir Expressferðir að endurgreiða alla ferðina heldur geti aðeins sagt til um hvað ferðaskrifstofan hafi átt að gera. „Þó að þessi úrskurður sé kominn er ekki víst að þessi aðili eða aðrir í sömu sporum fái peningana sína. Nú erum við í raun að bíða eftir því hvort Expressferðir ætli að bregðast við með því að endurgreiða þeim sem leitað hafa til okkar eða áfrýja,“ segir Hildigunnur. Lilja Hilmarsdóttir, rekstrarstjóri Expressferða, segir lögmenn ferðaskrifstofunnar enn fara yfir stöðuna. „Málið er enn þá í skoðun,“ segir Lilja. - gar
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Sjá meira