Innlent

Bið múslíma eftir mosku brátt á enda

Salmann við bænastund í moskunni í Ármúla. Skipulagsyfirvöld í Reykjavík gefa von um að múslímar á Íslandi fái brátt úthlutað langþráðri lóð undir nýja mosku. Fréttablaðið/Vilhelm
Salmann við bænastund í moskunni í Ármúla. Skipulagsyfirvöld í Reykjavík gefa von um að múslímar á Íslandi fái brátt úthlutað langþráðri lóð undir nýja mosku. Fréttablaðið/Vilhelm
Tíu ára bið múslima á Íslandi eftir lóð undir mosku í Reykjavík gæti senn verið á enda, en borgaryfirvöld eru vongóð um að geta fundið lóð á næstu vikum.

Félag múslima á Íslandi sendi í upphafi sumars fyrirspurn til borgaryfirvalda þar sem óskað var eftir viðræðum um málið. Þar var bent á svæði vestan Veðurstofu Íslands, á lóð Íslandsbanka við Kirkjusand og á lóð Sjómannaskólans við Háteigsveg.

Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkur, segir í samtali við Fréttablaðið að tvær lóðanna séu ekki á hendi borgarinnar og það flæki málin. „Við erum að skoða fleiri staði, sem henta varðandi aðkomu og samhengi við aðra starfsemi og þjónustu, þannig að þetta er komið af stað.“

Ólöf gat aðspurð ekki svarað því nákvæmlega hvaða svæði væri um að ræða. „Það eru nokkur svæði sem okkur þykja mjög spennandi. Við höfum verið að skoða svæði frá Elliðavoginum og inn í bæinn.“

Hún segir að þótt málið hafi verið svo lengi í kerfinu hafi ekki skort á pólitískan vilja til að finna lóð undir mosku. „Við fórum í það á sínum tíma að finna lóðir fyrir öll trúfélög og erum búin að finna lóð fyrir ásatrúarmenn í Öskjuhlíð og fyrir rétttrúnaðarkirkjuna við Nýlendugötu, en það er ekki mikið um lausar lóðir á vegum borgarinnar miðsvæðis.

Svo er oft búið að eyrnamerkja lóðirnar einhverjum öðrum eða gefa vilyrði fyrir annars konar starfsemi.“ Þetta hafi oft orðið til þess að hefja þurfti ferlið að nýju, en Ólöf er viss um að það takist nú. „Ég reikna með að þetta gerist núna á næstu vikum.“

Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, fagnar þessum fregnum, og að um sé að ræða mannréttindamál. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni eru um 600 múslímar á Íslandi.

Hann sagði að það væri lykil­atriði að vera miðsvæðis í borginni til að auðvelda aðgengi. „Þetta verður fyrir alla, ekki bara múslíma. Þetta verður fræðisetur þar sem allir geta komið og skoðað, lesið og lært og eytt fordómum sem til eru í samfélaginu.“

Ekki liggja enn fyrir teikningar, en Salmann segir að félagið sé að skoða málin í samstarfi við arkitekt. „Við viljum hafa þetta alíslenskt allt saman. Það er okkar stefna. Þetta er fyrir Íslendinga.“

thorgils@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×