Innlent

Eldur í Hraunbæ í gærkvöldi

Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað að íbúðablokk við Hraunbæ um klukkan hálf tólf í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um eld í íbúð á annarri hæð. Íbúðin var mannlaus og gekk greiðlega að slökkva eldinn.







MYND/Egill Aðalsteinsson
Rýma þurfti blokkina og voru strætisvagnar sendir til að veita íbúunum húsaskjól. Ein kona var flutt á slysadeild með væga reykeitrun að sögn slökkviliðsins. Eldsupptök eru ókunn en íbúðin er mikið skemmd. Þá urður einnig miklar skemmdir á sameign af völdum reyks og sóts.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×