Innlent

Ekki ástæða til þess að bjóða Framsókn í ríkisstjórn

Höskuldur Kári Schram skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir telur ekki ástæðu til þess að kippa Framsókn inn í ríkisstjórn.
Jóhanna Sigurðardóttir telur ekki ástæðu til þess að kippa Framsókn inn í ríkisstjórn.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telur að þingmeirihluti ríkisstjórnarinnar nægi til að koma fjárlagafrumvarpinu í gegnum Alþingi. Ekki sé ástæða til að bjóða framsóknarmönnum sæti í ríkisstjórn.

Nokkrir stjórnarþingmenn hafa nú þegar gagnrýnt niðurskurðar áform ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum og því óljóst hvort að meirihluti sé fyrir fjárlagafrumvarpinu á Alþingi.

Órólega deildin í Vinstri grænum hefur einnig veikt ríkisstjórnina og því hafa verið uppi vangaveltur um að framsóknarmönnum verði boðið að taka sæti í ríkisstjórn.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að ríkisstjórni vinni nú þegar með stjórnarandstöðunni til að finna lausnir við skuldavanda heimilana en ekki sé á dagskrá að fjölga flokkum í ríkisstjórn.

Aðspurð hvort það komi til greina að taka framsókn inn í ríkisstjórn svarar Jóhanna:

„Við erum að vinna með Framsókn og Hreyfingunni í þessu stóra stóra máli og þessi ríkisstjórn hefur meirihluta. Á meðan svo er þá tel ég að það sé ekki ástæða til þess."

Spurð hvort það sé meirihluti innan ríkisstjórnarflokkanna með fjárlagafrumvarpið eins og það lítur út núna svarar Jóhanna:

„Ég hef tekið eftir því að einstaka þingmenn í stjórninni hafa verið að andmæla. En það er ekki komin niðurstaða í þetta mál. Við erum að leita samráðs við heilbrigðisstofnanir úti á landi hvort við getum fundið lausn og við skulum sjá hver niðurstaðan verður. Ég treysti heilbrigðisráðherra mjög vel til þess að finna viðeigandi lausn fyrir alla aðila í þessu máli."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×