Birgitta: Ísland ekki risastór miðstöð fyrir klám 13. júní 2010 12:06 Birgitta Jónsdóttir þingmaður
Allsherjarnefnd leggur til að þingsályktunartillaga um að Ísland skapi sér afgerandi sérstöðu um vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis verði samþykkt með smávægilegum breytingum. Flutningsmaður tillögunar segir standa til að flytja erindi um hana á Evrópuþinginu síðar í mánuðinum. Tillöguna styðja þingmenn allra flokka, en fyrsti flutningsmaður hennar er Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar. Megininntak tillögunnar er að styrkja tjáningarfrelsi, málfrelsi, upplýsingamiðlun og útgáfufrelsi auk þess sem vernd heimildarmanna og afhjúpenda verði tryggð. Í nefndaráliti allsherjarnefndar sem lagt var fram í gær er lagt til að tillagan verði samþykkt, en Birgitta býst við að hún verði tekin til meðferðar fyrir þinglok. Hún segir stuðninginn í raun ekki hafa komið sér á óvart. Allsherjarnefnd segir þó ekki ætlunina að skapa aflandseyjastöðu á Íslandi þar sem alþjóðalög eru sniðgengin. „Í raun og veru erum við ekki að leggja til að breyta lögum þannig að eitthvað verði löglegt sem þegar er ólöglegt," segir Birgitta. „Við erum ekki að fara að vera risastór miðstöð fyrir klám eða eitthvað þvíumlíkt, heldur miklu frekar að tryggja það að þeir sem þurfa að koma upplýsingum á framfæri, til dæmis í tengslum við þessi risafyrirtæki sem ráða öllu hér í heiminum, eða spilltum pólitíkusum, geti birt fréttir um það án þess að eiga á hættu að þær verði stoppaðar." Birgitta segir erlenda fjölmiðla hafa sýnt tillögunni mikinn áhuga, og þeir hafi jafnvel sýnt því áhuga að flytja starfsemi sem tengist rannsóknarblaðamennsku til landsins verði hún að veruleika. „Segjum að það sé einhver sem leggur sig í lífshættu í Sri Lanka eða Kína að blogga um hvernig ástandið er þar. Við getum ekki bjargað manneskjunni frá lögsókn, en við getum tryggt að efnið fái að vera áfram," segir Birgitta.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent