Innlent

Fjórir handteknir vegna slagsmála

Tveir karlar á þrítugsaldri voru fluttir á slysadeild eftir að samkvæmi hafði farið úr böndunum í íbúð í Breiðholti í nótt samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki er vitað með áverka þeirra en ljóst er að það kom til handalögmála í íbúðinni og ekki er útilokað að bareflum hafi verið beitt.

Fjórir voru handteknir í tengslum við rannsókn málsins en um er að ræða þrjá karla og eina konu sem öll eru á þrítugsaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×