Innlent

Rafsegulmengun svipuð og í Svíþjóð

Segulsvið íbúða á Íslandi er svipað og í Svíþjóð samkvæmt rannsókn Geislavarna ríkisins og Brunamálastofnunnar. Rafsegulsvið í rúmlega 130 íbúðum var rannsakað og kom þá í ljós að segulsviðið er svipað og í Svíþjóð en frágangur raflagna á Íslandi og Svíþjóð er sambærilegur samkvæmt tilkynningu frá Geislavörnum ríksins.

Meðaltal segulsviðs mældist um 0,1 míkróteslur en algengustu gildi eru um 0,05 míkróteslur. Segulsvið yfir 0,4 míkró teslum er sjaldgæft og stafar oftast af svokölluðum flökkustraumum. Með einföldum aðgerðum má oftast draga úr þessum straumum segir í tilkynningunni.

Meðaltal segulsviðs í íbúðum í þéttbýli á Íslandi reyndist vera svipað og í Svíþjóð eða um 0,1 míkróteslur. Dæmigerð gildi mældust helmingi lægri eða um 0,05 míkróteslur.

Með hliðsjón af niðurstöðum rannsóknarinnar telja Geislavarnir ríkisins að ekki séu, að svo stöddu, veigamikil rök fyrir umfangsmeiri rannsóknum á styrk segulsviðs í íbúðarhúsnæði á Íslandi.

Þá telur Brunamálastofnun ekki þörf á að setja ítarlegri reglur um hönnun og setningu raflagna í byggingum hér á landi með það að markmiði að takmarka segulsvið enda þegar að finna í viðmiðunarreglum stofnunarinnar ákvæði þar að lútandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×