Innlent

Keppt í hönnun hjúkrunarheimilis í Fjarðabyggð

Frá Eskifirði.
Frá Eskifirði.

Boðað hefur verið til opinnar samkeppni um hönnun á nýju hjúkrunarheimili sem byggt verður á Eskifirði í Fjarðabyggð.

Þetta mun vera fyrsta heimili aldraðra sem verður hannað og skipulagt frá grunni samkvæmt viðmiðum sem félags- og tryggingamálaráðuneytisið hefur sett um skipulag hjúkrunarheimila.

Í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu segir að áætluð stærð byggingarinnar sé 1500 fermetrar að hámarki. Gert er ráð fyrir að hönnun hússins verði lokið vorið 2011 og að framkvæmdir hefjist þá um sumarið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×