Innlent

Flagga í hálfa stöng vegna áforma stjórnvalda

Stéttarfélögin hvetja Þingeyinga til að flagga í hálfa stöng á fimmtudaginn . Fáninn á myndinni hefur þó verið dreginn alla leið upp.
Stéttarfélögin hvetja Þingeyinga til að flagga í hálfa stöng á fimmtudaginn . Fáninn á myndinni hefur þó verið dreginn alla leið upp. Mynd/Pjetur
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna tillagna stjórnvalda um niðurskurð til reksturs Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Þar fordæma þau „glórulausar" tillögur stjórnvalda og segja þær lýsa algeru þekkingarleysi ríkisvaldsins á staðháttum, starfsemi og starfssvæðinu „sem nær yfir báðar Þingeyjarsýslurnar eða um 17% af landinu."

Stéttarfélögin segja að með aðgerðum ríkisvaldsins sé verið að lama svæðið og þrengja að búsetuskilyrðum heimamanna, „við slíkt verður aldrei, aldrei unað!," segir í yfirlýsingunni.

„Starfsfólk og skjólstæðingar Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga hafa þegar tekið á sig verulegar skerðingar undanfarin misseri og mega ekki við meiru. Heimamenn munu ekki kyngja þessum áformum hávaðalaust heldur sporna við með öllum tiltækum ráðum, hér er um líf og dauða byggðarinnar að tefla!

Stéttarfélögin hvetja Þingeyinga til að flagga í hálfa stöng á fimmtudaginn og fjölmenna á borgarafund á Fosshótel Húsavík, sama dag, klukkan 17:00. Með því sýna þeir samstöðu í verki gegn áformum stjórnvalda. Ef allir leggjast á árarnar tekst að koma í veg fyrir að þessi aðför að Þingeyingum gangi eftir."

Undir þessa yfirlýsingu skrifa:

Framsýn- stéttarfélag Þingeyinga

Þingiðn- félag iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum

Starfsmannafélag Húsavíkur

Verkalýðsfélag Þórshafnar

Samfylkingin í Þingeyjasýslu hafa sent frá sér samhljóða yfirlýsingu. Hægt er að lesa hana í viðhengi sem er hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×