Hanna Birna fer ekki í varaformanninn Þorbjörn Þórðarson skrifar 12. júní 2010 18:45
Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgarstjóri, hyggst ekki gefa kost á sér í embætti varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi síðar í mánuðinum. Útlit er fyrir að tvær þingkonur muni berjast um embættið. Enn sem komið er er Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, sú eina sem lýst hefur því opinberlega yfir að hún gefi kost á sér í embætti varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem fram fer dagana 25. og 26. júní næstkomandi. Tvær aðrar konur hafa verið nefndar sem kandídatar en það eru þær Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgarstjóri og Ragnheiður Elín Árnadóttir, oddviti flokksins í Suðurkjördæmi og starfandi formaður þingflokksins í fjarveru Illuga Gunnarssonar. Margir hafa hvatt Ragnheiði Elínu til að bjóða sig fram og nú fyrir helgina hvatti stjórn Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, Ragnheiði til að taka slaginn. Ragnheiður segist ætla að taka ákvörðun á næstu dögum um hvort hún gefi kost á sér en segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi. Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði í samtali við fréttastofu í fyrr dag að hún hygðist ekki gefa kost á sér í embætti varaformanns. Hanna Birna sagðist stolt af því hversu margir hefðu lýst yfir stuðningi við sig. Hún sagðist telja að framboði á þessum landsfundi yrði tekið sem einhvers konar vísbendingu um að hún stefndi á landsmálin. Svo væri hins vegar ekki því hún hefði fullan hug á því að starfa að málefnum Reykjavíkurborgar áfram og því myndi hún ekki gefa kost á sér í embætti varaformanns að þessu sinni. Enginn hefur lýst yfir framboði gegn Bjarna Benediktssyni sitjandi formanni og því er allt útlit fyrir að hann verði sjálfkjörinn í embættið.
Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Erlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fleiri fréttir Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Sjá meira