Innlent

Ósáttur við lögreglu eftir bílslys

Karen Kjartansdóttir skrifar
Foreldrar ungs manns sem lenti í bílsslysi á Reykjanesbraut á föstudag heyrðu fyrst af slysinu í símtali frá vini hans klukkutíma síðar. Þeir gagnrýna að lögreglan hafi ekki tilkynnt þeim um atburðinn. Bílslysið átti sér stað á vinnusvæði við Reykjanesbraut um áttaleytið á föstudag í Keflavík. Tveir ungir menn voru í bílnum. Beita þurfti klippum til að þeim úr flaki bílsins.

Páll Árnason, faðir annars mannsins eru mjög ósáttur við að lögreglan hafi ekki komið boðum til þeirra um að sonur þeirra hafi lent í slysi, þótt hann sé oðrinn nítján ára og teljist því ekki lengur barn. Fjölskyldan hafi ekki heyrt af atburðinum fyrr en vinur sonar þeirra hringdi í yngra barn þeirra um það bil klukkustund eftir að slysið varð til að spyrja hve illa mennirnir hefðu slasast. „Okkur brá mjög mikið því við höfðum ekkert heyrt af þessu. Yngir sonur okkar hleypur út á sjúkrahúsið sem er hérna skammt frá. Þar hittir hann sjúkraflutningamann sem sagði að hann hefði verið fluttur beint á sjúkrahús í Reykjavík. Nú eru tveir sólarhringar liðnir frá því slysið varð og lögreglan hefur enn ekki haft samband við okkur," segir Páll.

En betur fór en áhorfðist og eru báðir mennirnir komnir heim til sín en báðir eru þeir lemstraðir eftir veltuna. Páll er fyrrverandi lögreglumaður og segir hann að í sinni tíð hefði þótt nauðsynlegt að tilkynna ættingjum um slys sem þessi. „Dóttir okkar fór eftir miðnætti þetta kvöld og hitti á lögreglumann sem kom á vettvang og hann sagði að þeir hefðu bara verið að vinna og hefðu því ekki haft tíma til að hafa samband við einn eða neinn." Páll segir að í sinni tíð hafi það verið partur af vinnunni að hafa samband við ættingja þegar slys urðu.

Í samtali við fréttastofu sagði lögregluþjónn á Suðurnesjum að almenna reglan væri alltaf sú að tilkynna ættingjum um slys. Hann þekkti ekki til þessa einstaka máls en sagðist þykja leitt ef einhver mistök hafi orðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×