Innlent

Sjálfstæðismenn ítreka andstöðu við hækkanir á fasteignasköttum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hanna Birna Kristjánsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík óskuðu á fundi borgarráðs í dag eftir nákvæmum upplýsingum um áhrif breytinga fasteignamats á borgarsjóð. Þeir ítrekuðu jafnframt mikilvægi þess að mæta breytingunni ekki með auknum álögum á borgarbúa, heldur með hagræðingu, áframhaldandi aðhaldi og árangri í rekstri.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að síðasti ársreikningur borgarinnar hafi staðfest góðan rekstur sem skilaði mun betri árangri en spáð hafi verið.

„Þessa stöðu verður að nýta í þágu borgarbúa sem við þessar aðstæður geta ekki greitt hærri skatta. Öll vinna borgarstjórnar undanfarin misseri hefur miðast við að standa með borgarbúum og mikilvægt er að ekki verði tekið öðruvísi á málum nú enda ekki ástæða til," segir Hanna Birna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×