Starfsfólkið eignast fyrirtækin - ekki fyrrverandi eigendur 8. febrúar 2010 09:52 Lilja Mósesdóttir. Mynd/GVA
Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG og formaður viðskiptanefndar, vill að starfsfólki fyrirtækja sem bankarnir hafa leyst til sín verði gefinn kostur á að eignast þau í stað fyrrverandi eigenda sem oftar en ekki komi ekki inn með eigið fé í reksturinn. Hún telur brýnt að settar verði meginreglur um markmið með skuldbreytingum fyrirtækja og heimila. Rætt var við Lilju í þættinum Í bítið á Bylgjunni fyrr í morgun. Lilja sagðist vera óánægð með Arion banka þegar kemur að málefnum eignarhaldsfélagsins Haga sem meðal annars rekur verslanirnar Bónus, 10-11 og Hagkaup. Bankinn heldur nú utan um 98 prósenta hlut í Högum en 2 prósent eru í eigu stjórnendanna. Almenningi og fagfjárfestum mun standa til boða að kaupa hluti í félaginu. Núverandi stjórnendum Haga býðst forkaupsréttur að 15% hlut og þar af Jóhannesi Jónssyni allt að 10% hlut á sama gengi og öðrum fjárfestum. „Þessi aðgerð hefur orðið til þess að ég vill að við stjórnarliðar setjum meginreglur um dreift eignarhald," sagði Lilja en hún vill einnig að starfsfólkið fái tækifæri til að eignast fyrirtækin. „Starfsfólkið hefur tekið á sig launalækkanir og þessir eigendur eru oft á tíðum ekki að koma inn með nýtt eigið fé. Þeir fá jafnvel að halda fyrirtækjunum þó svo að þeir komi ekki inn með eigið fé því þeir eru taldir svo mikilvægir fyrir reksturinn. Í mörgum fyrirtækjum er starfsfólkið mikilvægara heldur en eigendurnir," sagði Lilja. Hægt er að hlusa á þáttinn hér.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira