Herjólfi verður siglt eftir sjávarföllunum Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. september 2010 06:00 Við byggingu Landeyjahafnar var gert ráð fyrir að sunnan- og suðvestanvindar yrðu ráðandi líkt og síðustu 40 ár þar á undan. Síðustu ár hafa hins vegar suðaustlægar áttir sett strik í reikninginn. Fréttablaðið/arnþór
Ferðir Herjólfs milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar féllu niður í gær vegna uppsafnaðs gosefnis frá Eyjafjallajökli í innsiglingu hafnarinnar. Vegna veðurs var svo fallið frá því að reyna að sigla á flóðinu síðdegis, að sögn Guðmundar Nikulássonar, framkvæmdastjóra Eimskips innanlands. Hálfur annar mánuður er síðan Landeyjahöfn var formlega opnuð fyrir siglingar Herjólfs milli lands og Eyja. Næstu daga siglir Herjólfur eftir „sjávarföllum og áætlun sem unnin er í samráði við Siglingastofnun“ að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Gert er ráð fyrir því að fara þrjá ferðir á dag og þarf því ekki að sigla til Þorlákshafnar. Áður voru farnar tvær ferðir á dag þangað. Dýpkunarskipið Perlan býður færis í Reykjavík og gæti verið komið í Landeyjahöfn á fimmtudag, en veður hamlaði för í gær. Þó fór sérfræðingur Siglingastofnunar með lóðsinum í Vestmannaeyjum og gerði bráðabirgðamælingar á dýpt í Landeyjahöfn. Guðmundur segir að í gær hafi verið farið yfir flóðatöflur og búin til áætlun, en ráð sé fyrir því gert að hratt gangi við dýpkun innsiglingarinnar þegar hafist verði handa við hana á fimmtudag, jafnvel svo að hægt verði að fjölga ferðum á laugardaginn. Vegna veðurhæðar og hliðarvinds segir Guðmundur hins vegar að skipstjóri Herjólfs hafi fallið frá ferðum í gær. Á vef Siglingastofnunar er bent á að Herjólfur risti metra dýpra en ferja sem áætlað var að smíða sérstaklega fyrir þessar siglingar. Guðmundur segir að inna verði samgönguráðherra eftir því hvort taka eigi upp að nýju ráðagerðir um nýja ferju. Hins vegar nýtist Herjólfur ágætlega enn um sinn, þar sem ýmsum þáttum í hönnun hafnarinnar hafi verið breytt svo hann gæti farið þar um. Herjólfur taki hins vegar á sig meiri vind en skipið sem ráðgert var að nota og því sé reiknað með að allt að 15 prósent ferða kunni að falla niður yfir vetrartímann. „En það er ágætismál að prufukeyra þessa höfn með Herjólfi,“ segir Guðmundur, því þá verði komin slík reynsla á siglingarnar að allar þarfir liggi vel fyrir þegar að því kemur að panta nýtt skip.Í öskufallinu Þótt ástandið sé ekki ennþá svona við Bakka, líkt og þegar gosið í Eyjafjallajökli stóð sem hæst snemmsumars, þá hefur gosið enn áhrif á samgöngur. Fréttablaðið/PJETUR
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Innlent Fleiri fréttir Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Sjá meira