Innlent

Útséð um sátt á ársfundi hvalveiðiráðsins

Tilraunir til þess að koma á sátt í Alþjóðahvalveiðiráðinu hafa mistekist. Á ársfundi ráðsins sem nú stendur yfir var reynt að komast að samkomulagi um málamiðlun sem fæli í sér takmarkaðar hvalveiðar. BBC greindi hinsvegar frá því í dag að viðræðurnar hafi farið út um þúfur og að eftir tveggja daga fundarhöld sé ljóst að ekkert samkomulag mun nást.

Málamiðlunin hefði leyft hvalveiðar Íslendinga, Norðmanna og Japana undir eftirliti ráðsins næstu tíu árin. Fulltrúi Bandaríkjanna í ráðinu segir að ekkert verði af samkomulagi í þetta skiptið en Bandaríkin hafa verið í forystu um að koma á sátt á milli andstæðinga hvalveiða og þeirra sem vilja leyfa þær.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×