Innlent

Reglugerð sett um styrk brennisteinsvetnis

Umhverfisráðherra hefur sett reglugerð um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að markmið reglugerðarinnar sé að draga úr mengun brennisteinsvetnis frá jarðhitavirkjunum og mögulegum neikvæðum áhrifum hennar á heilsu fólks. Brennisteinsvetni hefur mælst í mun meira magni síðustu ár á höfuðborgarsvæðinu eftir að nýting jarðhita var aukin á Hellisheiðarsvæðinu en brennisteinsvetni getur haft áhrif á heilsu fólks, gróður og mannvirki að sögn ráðuneytisins.

Kvartanir frá almenningi

Í tilkynningu segir að einnig hafi borist mikið af kvörtunum frá almenningi vegna óþæginda og sterkrar lyktar af brennisteinsvetninu. Hingað til hafa vinnuverndarmörk verið einu mörkin sem sett hafa verið um styrk brennisteinsvetnis hér á landi en að sögn ráðherra hafa þau mörk ekki þótt nothæf viðmið til að tryggja að almenningur verði ekki fyrir áhrifum. Í nýju reglugerðinni eru heilsuverndarmörk brennisteinsvetnisins sett við 50 míkrógrömm í rúmmetra að meðaltali fyrir hverjar 24 klukkustundir. Gefið er ákveðið aðlögunartímabil þar sem leyfirlegt verður að fara yfir mörkin fimm sinnum á ári en frá og með 1.júlí 2014 verður alfarið óheimilt að fara yfir þessi mörk.

Mörk Alþjóðlegu heilbrigðisstofnunarinnar eru 150 míkrógrömm í rúmmetra og eru þau sett með tilliti til mögulegra bráðaáhrifa á augu en ekki langtímaáhrifa á heilsu fólks. Umhverfisráðherra segir óvissu ríkja um heilsufarsáhrif af langvarandi innöndun brennisteinsvetnis og því hafi hún talið nauðsynlegt að setja mörkin þannig að almenningur fái notið vafans.

Samkvæmt reglugerðinni eiga fyrirtæki sem reka jarðvarmavirkjanir að setja upp mælistöðvar og fylgjast betur með losun brennisteinsvetnis en hingað til hefur verið gert. Með því á að tryggja nægilegar og samræmdar mælingar á styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti og að þeim upplýsingum sé miðlað til almennings.

Fyrsta skrefið

Umhverfisráðherra segir að reglugerðin sé aðeins fyrsta skrefið í að draga úr mengun frá jarðvarmavirkjunum. Í ráðuneytinu sé nú verið að meta hvort setja þurfi fyrirtækjum sérstök losunarmörk sem yrðu strangari en mörk um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×