Ákærðir fyrir hrottalegt ofbeldi 12. júlí 2010 06:00 Héraðsdómur Reykjaness Mönnunum hefur verið stefnt fyrir rétt fyrir alvarleg hegningarlagabrot.
Fjórir menn hafa verið ákærðir fyrir frelsissviptingu og stórfellda líkamsárás í Reykjanesbæ í apríl síðastliðnum. Mönnunum er gefið að sök að hafa svipt mann frelsi í fjórtán klukkustundir, beitt hann ofbeldi og hótað honum meira ofbeldi og lífláti ef hann greiddi ekki meinta skuld. Sá elsti fjórmenninganna er samkvæmt ákæru talinn hafa haft sig mest í frammi. Í ákæru segir að mennirnir hafi ítrekað slegið fórnarlambið í andlit og skallað hann. Því næst hafi þeir læst hann inni í fataskáp og hengt logandi 400 vatta peru fyrir ofan hann. Þá hafi þeir vafið rafmagnssnúru um háls mannsins og dregið hann í snörunni. Maðurinn hafi nánast misst meðvitund vegna þessa. Hann var svo bundinn við stól og skilinn eftir klukkstundum saman. Næsta dag fóru ofbeldismennirnir með manninn í banka þar sem honum var sagt að taka út peninga, því næst var haldið í apótek þar sem manninum var gert að leysa út lyfseðil. Að síðustu neyddu þeir manninn til að stela verkfærum sem stóðu á gangstétt. Fórnarlamb ofbeldisins var handtekið skömmu síðar fyrir verkfærastuldinn. Krafist er refsingar yfir öllum ákærðu og einnig að þeir greiði fórnarlambinu milljón króna í miskabætur auk málskostnaðar. - bþh
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira