Innlent

Engir gengistryggðir lánasamningar hjá Arion

Arion Banki segir í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér að engir gengistryggðir samningar séu hjá bankanum.

Þá segir ennfremur í tilkynningunni að það sér mat lögfræðinga hjá bankanum að lánasamningar bankans séu löglegir.

Tilkynningin hljóðar svo orðrétt:

„Í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar um lögmæti gengistryggðra lána vill Arion banki koma því á framfæri að engin gengistryggð bílalán eru hjá bankanum. Það er mat lögfræðinga bankans að lánasamningar Arion banka séu löglegir. Bankinn mun kynna sér dóm Hæstaréttar ítarlega á næstu dögum.

Ljóst er að niðurstaða í þessu máli mun ekki hafa nein áhrif á stöðu bankans.

Arion banki vill árétta við viðskiptavini sína að þeir sem hafa nýtt sér lausnir bankans hafa ekki firrt sig betri rétti."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×