ASÍ segir sig frá stöðugleikasáttmálanum 16. júní 2010 15:30
Miðstjórn ASÍ gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir að standa ekki við fyrirheit um starfsendurhæfingu í stöðugleikasáttmálanum og samtökin hafa því ákveðið að segja sig formlega frá stöðugleikasáttmálanum. Lögbinding þessara ákvæða var síðasta hálmstráið sem rökstuddi aðild ASÍ að sáttmálanum að því er segir í tilkynningu frá ASÍ. „Nú er sú von að engu orðin og lýsir miðstjórn ASÍ því formlega yfir að engar forsendur eru fyrir aðkomu þess að frekari samstarfi á þeim grunni." Í ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands segir að réttur til starfsendurhæfingar sé mikilvægur liður í að efla og treysta stöðu launafólks á vinnumarkaði sem lendir í áföllum vegna veikinda og slysa. Um leið er hún stórt hagsmunamál fyrir samfélagið í heild. „Með yfirlýsingu þáverandi ríkisstjórnar í tengslum við gerð kjarasamninga í febrúar 2008 var gerð mikilvæg sátt á milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um uppbyggingu og þróun starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Markmiðið er að tryggja öllu launafólki rétt til starfsendurhæfingar í kjölfar veikinda eða slysa. Jafnframt var gerð sátt um það hvernig fjármagna ætti þetta mikilvæga verkefni með framlagi allra aðila, þar með talið stjórnvalda." Þá segir að framangreind sátt hafi verið áréttuð af núverandi ríkisstjórn með stöðugleikasáttmálanum í júní á síðasta ári, þar sem fulltrúar aðila vinnumarkaðarins samþykktu verulega lækkun og seinkun á framlögum ríkisins vegna erfiðrar stöðu ríkissjóðs. „Þar var jafnframt ákveðið hvernig staðið yrði að málum til að öllu fólki á vinnumarkaði yrði tryggður réttur til starfsendurhæfingar. Samkvæmt samkomulaginu átti að afgreiða málið á Alþingi fyrir lok síðasta árs. Minna má á að meira en 1/3 félagsmanna ASÍ eru nú án þessara réttinda." Síðasta hálmstráið Miðstjórnin segir að nú liggi fyrir að frumvarp um lögbindingu á greiðsluskyldu atvinnurekenda og lífeyrissjóða til starfsendurhæfingar verði ekki afgreitt á yfirstandandi þingi og málið allt í uppnámi. „Þar með hafa stjórnvöld enn á ný svikið þau loforð sem gefin hafa verið. Með þessari framgöngu eru stjórnvöld og Alþingi beinlínis að koma í veg fyrir að stórir hópar fólks á almennum vinnumarkaði og öryrkjar hjá lífeyrissjóðunum njóti réttar til starfsendurhæfingar." Miðstjórn ASÍ gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir að standa ekki við fyrirheit í stöðugleikasáttmálanum. „Það er engin launung að væntingar miðstjórnar ASÍ til lögbindingar þessara ákvæða var síðasta hálmstráið sem rökstuddi aðild ASÍ að þessum svokallaða sáttmála, þrátt fyrir aðgerða- og úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar í efnahags- og atvinnumálum. Nú er ljóst að sú von er að engu orðin og lýsir miðstjórn ASÍ því formlega yfir að engar forsendur eru fyrir aðkomu þess að frekari samstarfi á þeim grunni." Að lokum ítrekar miðstjórnin fyrri hvatningu til aðildarfélaga sinna um að hefja undirbúning að gerð kjarasamninga. „Ljóst má vera að framundan eru erfiðar viðræður um gerð nýrra kjarasamninga og barátta fyrir réttindum félagsmanna aðildarfélaga Alþýðusambandsins."
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira