Varabæjarfulltrúi sakar samherja um ólýðræðisleg vinnubrögð 16. júní 2010 12:33 Elfur Logadóttir, lögfræðingur, er fyrsti varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. Hún er auk þess formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar.
Elfur Logadóttir, fyrsti varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, sakar samherja sína og forystumenn flokksins í bæjarfélaginu um ólýðræðisleg vinnubrögð. Hún segir þá ástunda sama vinnulag og þeir gagnrýni aðra flokka fyrir. Elfur skipaði fjórða sætið á framboðslista Samfylkingarinnar en flokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa kjörna í kosningunum í lok maí. Nýr meirihluti Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Næstbesta flokksins og Lista Kópavogsbúa tók til starfa í gær en flokkarnir hafa sex af ellefu bæjarfulltrúum í bæjarstjórn. Í pistli um málið á heimasíðu sinni nefnir Elfur sérstaklega viðbrögð forystunnar við gagnrýni hennar á eitt helsta kosningamál flokksins, svokallaða Kópavogsbrú, sem fjallaði um aðgerðir í húsnæðis- og atvinnumálum. „Svör oddvita og varaoddvita við efasemdum mínum voru nær orðrétt: það þyrfti ekki endilega að standa við þetta kosningaloforð að loknum kosningum," segir Elfur. Hún segist hafa sagt að hún hefði ekki áhuga að svona vinnubrögðum og innihaldslausum kosningaloforðum.Áfram í Samfylkingunni „Valdhafar í Samfylkingunni í Kópavogi virðast enn ekki hafa áttað sig á hlutverki sínu á þeim tímum sem við nú lifum og hversu mikilvæg krafa fólks um breytta stjórnhætti er - í hverju hún felst. Þeir verða að átta sig á því að beiting formleysis við undirbúning og ákvarðanatöku er það sem hefur reynst fólkinu í landinu svo dýrkeypt," segir Elfur í pistli á heimasíðu sinni. Elfur hyggst ekki segja sig úr Samfylkingunni eða frá þeim trúnaðarstörfum sem hún var kjörin til. Hún mun ekki sitja i í neinum nefndum á vegum flokksins. Pistilinn er hægt að lesa hér.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira