Bréf til bænda frá gömlum Mýramanni 9. október 2010 05:00 Í bréfi til bænda segist utanríkisráðherra vera gamall Mýramaður og kominn af smábændum í Keldudal í Dýrafirði.Fréttablaðið/Stefán
Gott og náið samstarf við bændur og forystu þeirra telur Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra forsendu þess að hagur þeirra verði sem tryggastur gegnum viðræðurnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). „Staðreyndin er einfaldlega sú, að samningsstaða íslensks landbúnaðar er betri en þeir telja, sem ekki vilja láta á hana reyna,“ segir í bréfi Össurar í Bændablaðinu á fimmtudag, svari við bréfi Bændasamtakanna til hans. „Ég ber fulla virðingu fyrir skoðunum þeirra, sem eru á móti aðild. Ef það verður niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslu að hafna samningi, þá tek ég því einsog þegar svartbakurinn barði mig á Mýrunum í gamla daga,“ segir Össur, en segir um leið að óráð væri að draga umsókn Íslands til baka. Hann segir menn verða að ráða því hvort þeir séu að óséðum samningi með eða á móti aðild, en brýnir um leið fyrir þeim sem hagsmuna eiga að gæta, að gera ráð fyrir þeim möguleika að samningur verði á endanum samþykktur. „Þá mun mestu skipta fyrir bændur að okkur hafi tekist að vinna saman að því að samningurinn sé sem bestur,“ segir Össur. - óká
Mest lesið Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira