Leggur til að menning og listir verði lagðar niður í sólarhring Valur Grettisson skrifar 7. október 2010 13:05 Baldvin Esra Einarsson að grínast. Honum er þó ekki hlátur í huga þessa dagana.
Hljómplötuútgefandinn Baldvin Esra Einarsson, sem rekur Kimi Records, er kominn með nóg af árlegri umræðu um sóun fjármuna í listir á Íslandi. Hann hvetur Bandalag íslenskra Listamanna (BÍL) til þess að fara í eins dags allsherjarverkfall til þess að minna á mikilvægi listarinnar. Þetta kemur fram í formlegu bréfi frá honum til formanns BÍL. Í bréfinu segir Baldvin að hann sé ekkert sérstaklega að elta ólar við ummæli Ásbjörns Óttarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, heldur sé hann orðinn langþreyttur á því að umræðan poppi upp árlega. „Umræðan er leiðinleg og engum til framdráttar og ef fólk gerir sér grein fyrir gildi menningar í samfélagi okkar þá mun ekki nokkur maður leggja í það að brydda á þessu máli aftur," skrifar Baldvin sem vill að í allsherjarverkfallinu verði einnig lagt blátt bann við neyslu hverskyns listar. Til útskýringar skrifar Baldvin: „Þá á ég við að eftirtaldir aðilar leggi niður vinnu og banni alla notkun á verkum sínum: Arkitektar, handritshöfundar, hönnuðir (fata-, grafískir, húsgagna-, leikmynda- osfrv.), kvikmyndagerðarfólk, leikarar, leikstjórar, listdansarar, rithöfundar myndlistarfólk, tónlistarfólk og tónskáld. Bannið ætti því að ná til allra listaverka í íslensku samfélagi hvar sem það kann að birtast. Engin mætti leika eða selja tónlist, sjónvarp og kvikmyndahús mætti ekki sýna efni nema það væri gjörsamlega án alls listræns framlags, ekki mætti selja eða lesa bækur, leikhús myndu loka, öll myndlist og styttur á almenningi yrði hulin, hús teiknuð af arkitektum yrðu hulin, öll tímarit og dagblöð yrðu án verka listamanna og svo framvegis." Það er nokkuð ljóst að sá sólarhringur yrði heldur fátæklegur en Baldvin leggur til að verkfallið verði haldið 9. október, sama dag og bítillinn John Lennon fæddist.Hér má lesa pistilinn í heild sinni.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira