Innlent

Fjórir handteknir eftir líkamsárás

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Maðurinn var fluttur á slysadeild. Mynd/ Vilhelm
Maðurinn var fluttur á slysadeild. Mynd/ Vilhelm
Karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir líkamsárás á horni Laugavegar og Vitastígar í dag. Fjórir menn voru handteknir eftir árásina og eru enn í haldi lögreglunnar. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild hlaut maðurinn höfuðáverka en þeir voru ekki alvarlegir. Maðurinn verður til eftirlits á slysadeild fram eftir kvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×