Innlent

Sex bíla árekstur við Bústaðaveg

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sex bíla árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar fyrir stundu. Fjórir voru fluttir á slysadeild úr tveimur bílum en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er ekki um alvarleg meiðsl á fólki að ræða. Umferðartafir gætu orðið við gatnamótin fram á sjöunda tímann í kvöld vegna slyssins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×