Ísland í forgrunni í Frankfurt - ekkert skorið niður 7. október 2010 12:14 Frá fundinum í morgun.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra var viðstödd blaðamannafund sem haldinn var í Frankfurt í morgun þar sem helstu viðburðir tengdir Íslandi á Bókasýningunni í Frankfurt á næsta ári, en þar skipar Ísland heiðurssess. „Íslendingar fagna því að Bókasýningin í Frankfurt hafi boðið okkur að vera heiðursgestir árið 2011" sagði Katrín á fundinum sem verkefnið Sagenhaftes Island hélt á sýningunni í morgun. Þar voru kynntir helstu bókmennta- og listviðburðir sem fram fara á næsta ári í tengslum við heiðurssess Íslands á sýningunni. Katrín sagði verkefnið afar mikilvægt fyrir íslenska menningu og menningarkynningu og benti á að fjárframlög til þess hefðu ekki verið skorin niður á íslensku fjárlögunum, að því er fram kemur í tilkynningu. „Hápunktur framlags Íslands á Bókasýningunni verður kynning á nýrri heildarþýðingu Íslendingasagnanna á þýsku. Verkin verða gefin út af forlaginu S.Fischer með stuðningi Menningarstofnunarinnar í Nordrhein-Westfalen. Þessi nýja útgáfa mun að nýju veita stórum lesendahópi aðgang að þessum einstæðu menningarsögulegu verkum," segir ennfremur. Þá sagði Katrín að íslenskar bókmenntir stæðu í blóma nú um stundir og sérstaklega glæpasögur. Erlendis væri notað hugtakið Íslandskrimmi um glæpasögurnar. Þá kom einnig fram á fundinum að samið hafi verið um útgáfu á hátt í hundrað íslenskum bókum í Þýskalandi næsta árið. Juergen Boos framkvæmdastjóri Bókasýningarinnar talaði einnig á fundinum og sagði hann að þrátt fyrir að Ísland væri á meðal minnstu markaðssvæða heimsins væri samt „ótrúlega mikið gefð út," en Boos er sagður afar áhugasamur um íslenskar bókmenntir og listir. Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri Sagenhaftes Island, sagði frá yfirstandandi verkefnum og viðburðum næsta árs. Sögueyjan Ísland mun kynna íslenskar bókmenntir með upplestrum og öðrum kynningum á bókmenntahátíðum, í samstarfi við bókasögn, forlög og verslanir um allt Þýskaland á næsta ári.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira