Innlent

Krefjast þess að niðurskurðurinn verði endurskoðaður

Fljótsdalshérað.
Fljótsdalshérað.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs mótmælir harðlega boðuðum niðurskurði til Heilbrigðisstofnunar Austurlands sem fram kemur í nýju fjárlagafrumvarpi. Bæjarstjórnin segir einsýnt að niðurskurðurinn leiði af sér fjöldauppsagnir og stórkostlega skerta þjónustu við íbúa fjórðungsins.

Bæjarstjórn telur sérstaklega ámælisvert að ekkert samráð hafi verið haft við forsvarsmenn sveitarfélaganna og HSA í málinu og er þess krafist að tillagana verði endurskoðuð með öryggissjónarmið og byggðalegar afleiðingar í huga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×