Flöt afskrift er vond hugmynd segir AGS Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. október 2010 06:00 Fréttablaðið/Vilhelm
Fréttaskýring Hvað hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn á móti flatri skuldaafskrift? Allmikil umræða varð snemma árs 2009 um kosti þess að mæta skuldavanda þjóðarinnar með flatri 20 prósenta niðurfellingu húsnæðisskulda heimila og heildarskulda fyrirtækja. Hugmyndin, sem komin var frá Framsóknarflokki og naut hljómgrunns í Sjálfstæðisflokki, hefur nokkrum sinnum skotið upp kollinum síðan. Í nýendurskoðaðri viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um efnahagsáætlun landsins í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) eru hins vegar tekin af öll tvímæli um að leiðin sé á dagskrá. Áherslan sé á að hjálpa þeim verst stöddu. Eftir að nokkra umræðu í fyrra kom í ljós að hún hugnaðist ekki AGS. Í viðtali við Fréttablaðið 14. mars 2009 sagði Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndar sjóðsins að slík aðgerð yrði ríkisstjórninni mjög dýr og skilaði litlum árangri. Mat sendinefndarinnar var að flöt skuldaniðurfelling væri ekki möguleg. Þeir sem ekki þyrftu á því að halda myndu hagnast verulega á skuldaniðurfellingunni, en þeir sem þyrftu á aðstoð að halda fengju hana ekki. Þessa skoðun áréttaði Flanagan svo í apríllok á þessu ári, að lokinni annarri endurskoðun áætlunarinnar. Á símafundi með fjölmiðlum harmaði hann að sá árangur sem stjórnvöld hefðu náð í að takast á við skuldavanda heimila skyldi hafa komið fram í skrefum sem virtust hafa ýtt undir væntingar um fjársjóð við enda regnbogans. „Þar er engan fjársjóð að finna,“ sagði hann og kvað kröfur um flata afskrift óraunhæfar. „Peningar til slíkra aðgerða eru ekki til. Ef einhver hugmynd er vond, þá er það þessi,“ sagði hann og ítrekaði að afksriftum ætti ekki að beita nema þörf krefði. „Ástæðulaust er að afskrifa háar skuldir hjá einhverjum sem einnig á miklar eignir.“ Flestir hagfræðingar hafa tekið undir að hugmyndin um flata skuldaafskrift sé slæm og þá hafa lífeyrissjóðirnir verið á móti henni, enda liggur hluti húsnæðisskulda í lánum frá þeim. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, sagði í mars í fyrra að leiðin væri ávísun á skerðingu lífeyrisréttinda. Við 20 prósenta afskrift myndu eignir sjóðanna skerðast um 33 milljarða, en á þeim tíma voru sáralítil vanskil á lánum sjóðanna. Þá kom fram í svari viðskiptaráðherra á Alþingi í maí á þessu ári að kostnaður ríkisins við að lækka höfuðstól verðtryggðra lána um 20 prósent yrði 229 milljarðar króna. Greiðslubyrði meðalláns hjá íbúðalánasjóði myndi að jafnaði ekki lækka um nema fimm til níu þúsund krónur á mánuði.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Sjá meira