Innlent

Björgunarsveitin í viðbragðsstöðu í Vestmannaeyjum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björgunarsveitamenn sinna óveðursútkalli. Mynd/ Auðunn.
Björgunarsveitamenn sinna óveðursútkalli. Mynd/ Auðunn.
Björgunarsveitin í Vestmannaeyjum er komin í viðbragðsstöðu vegna óveðurs þar. Lögreglan segir að það sé að bæta í vind og því vilji menn vera við öllu búnir.

Þak losnaði af bílskúr í Vestmannaeyjum fyrr í dag og svo losnaði klæðning af sólhúsi.

Vegagerðin varar vegfarendur við miklu hvassviðri á Suðurlandi og Reykjanesi um miðjan dag í dag. Það gæti verið varasamt að vera á ferð undir Eyjafjöllum, Hafnarfjalli, á Kjalanesi og á Reykjanesbraut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×