Vongóð um að það náist að semja um þinglok Hafsteinn Hauksson skrifar 13. júní 2010 19:06
Stjórn og stjórnarandstöðu gengur illa að semja um þinglok og enn er ágreiningur um afgreiðslu stórra mála. Forseti Alþingis vonast þó til þess að samkomulag náist á morgun. Þrátt fyrir stíf fundahöld flokksformanna og þingforseta í gær hefur enn ekki tekist að ná samkomulagi um þinglok. Þeir munu áfram hafa rætt saman í dag, en Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, telur ólíklegt að hægt verði að ná lendingu um slit þingsins fyrr en á morgun. Hún segir að allir verði að gefa eitthvað eftir ef sátt eigi að nást og um það snúist málið. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru það helst varnarmálalögin, vatnalögin og lög um innstæðutryggingar sem enn á eftir að finna sátt um. Þverpólitísk samstaða mun hinsvegar vera um að ljúka ýmsum þingmálum sem lúta að skuldavanda heimilanna. Einn viðmælandi fréttastofu setti spurningamerki við hvort nægur tími væri til stefnu til að klára þau, en samkvæmt upphaflegri starfsáætlun þingsins verður þingi frestað á þriðjudag. Ásta sagðist þó bjartsýn á að þinginu tækist að standa nokkurnvegin við áætlun og segist vona að hægt verði að ljúka þeim málum sem snúa að heimilunum. "Ég geri ráð fyrir að menn nái utan um það. Ég er allavega að vona að það takist. Það er þverpólitísk vinna í gangi núna yfir helgina og á morgun til að leysa það, og ég er vongóð um að það náist," segir Ásta.
Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Konan er fundin Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Fleiri fréttir Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Lögðu hald á mikið magn fíkniefna og fleiri milljónir Sjá meira