Gunnar Eyjólfs og Ómar Ragnars rúlluðu síðasta spölinn Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. ágúst 2010 18:45
Starfsfólk Reykjadals gekk í rúman hálfan sólarhring með þjóðþekkt fólk í hjólastólum til þess að safna áheitum fyrir sumarbúðirnar og nú hefur markmiðum söfnunarinnar verið náð, en rúmlega 15 milljónir króna hafa safnast. Starfsmenn Reykjadals, sumarbúða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, efndu til mikillar göngu sem hófst í gærmorgun kl. átta hjá sumarbúðunum í Reykjadal og endaði í dag um tvöleytið í höfuðstöðvum Styrktarfélagsins að Háaleitisbraut 13. Alls var því gengið í rúmlega þrjátíu klukkustundir um 130 kílómetra leið, en starfsmenn gengu með þjóðþekkta farþega í hjólastólum alla leiðina, eins og Eddu Björg Eyjólfsdóttur leikkonu og skemmtikraftana Haffa Haff og Steinda Jr. o.fl. „Við erum alveg afskaplega þakklát fyrir þessar frábæru móttökur sem við höfum fengið. Eftir því sem ég best veit, eftir að hafa verið í göngu í einn og hálfan sólarhring, þá eru komnar fimmtán milljónir og rúmlega það. Þannig að við erum búin að tryggja að Reykjadalur verður opinn í vetur," segir Sólveg Hlín Sigurðardóttir, forstöðumaður Reykjadals. Meðal þeirra sem sátu í stólunum síðasta spölinn voru Ómar Ragnarsson sjónvarpsmaður og skemmtikraftur og Gunnar Eyjólfsson leikari. „Það var tími til kominn að menn á mínum aldri skilji hvað sumt fólk á erfitt í lífinu, maður tekur því sem sjálfsögðum hlut að geta gengið og hlaupið," segir Gunnar. Ómar Ragnarsson segir að Reykjadalur hafi nýst aðstandendum beggja, því sonur Ómars og dótturdóttir Gunnars hafa dvalið þar. „Svo til viðbótar þá er þetta sérstök ánægja fyrir okkur tvo að vera hérna, því það er hrein tilviljun að veturinn 1959 hófum við báðir feril okkar sem skemmtikraftar," segir Ómar og Gunnar bætir við: „Það stendur enginn einn sem á Ómar að." Sjá viðtal við þá félaga og Sólveigu Hlín í myndskeiðinu með fréttinni.
Tengdar fréttir Á sjöttu milljón safnað fyrir börnin í Reykjadal „Söfnunin gengur stórvel og nú hafa um 5,6 milljónir safnast. Við eigum von á stórum gjöfum á morgun og á þriðjudaginn þegar gangan hefst,“ segir Sólveig Hlín Sigurðardóttir forstöðumaður Reykjadals. 14. ágúst 2010 13:34 Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Sjá meira
Á sjöttu milljón safnað fyrir börnin í Reykjadal „Söfnunin gengur stórvel og nú hafa um 5,6 milljónir safnast. Við eigum von á stórum gjöfum á morgun og á þriðjudaginn þegar gangan hefst,“ segir Sólveig Hlín Sigurðardóttir forstöðumaður Reykjadals. 14. ágúst 2010 13:34