Innlent

Raggi Bjarna nennir ekki að læra textana

Stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason er óskipulagður og pínulítið gleyminn, en hvers manns hugljúfi sem gerir ekkert með hangandi hendi og er fyrir löngu búinn að syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar. Sýnd var nærmynd af söngvaranum í þættinum Ísland í dag fyrr í í kvöld. Í hópi viðmælenda voru Bjarni Ómar, sonur Ragnars, Árni Sveinsson, leikstjóri heimildarmyndarinnar Með hangandi hendi, leikarinn Magnús Ólafsson og Ómar Ragnarsson.

Meðal þess sem kom fram er að Raggi nennir ekki að læra texta. „Hann bara nennir ekki að læra þá. Mér finnst það ekki vera galli. Raggi er svo skemmtilegur náungi," sagði Magnús um Ragga.

Um ævisögu söngvarns sagði Ómar: „Þegar verið var að skrifa ævisögu Ragnars þá var hringt í mig daglega og stundum oft á dag. Ég spurði: Af hverju talar þú ekki við Ragnar? Er hann ekki hjá þér? Jú, en hann segir þegar ég spyr hann: Spurðu Ómar af þessu. Hann var sá eini sem var edrú og man eitthvað."

Hægt er að horfa á nærmyndina af Ragga Bjarna hérna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×