Kristján Loftsson: Fréttaflutningur af útflutningi „njósnastarfsemi“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. júlí 2010 12:15 Kristján Loftsson, stjórnarformaður Hvals hf. við upphaf vertíðar hinn 29. júní síðastliðinn. Vísir/ANTON
Um ellefu hundruð tonn af hvalaafurðum sem Hvalur hf. hefur veitt eru í frystigeymslu, en það er tæpur fjórðungur af því sem fyrirtækið veiddi í heild sinni á síðasta ári. Kristján Loftsson segir útilokað að losa þúsund tonn á Japansmarkað á einu bretti og því sé þetta í frystigeymslu. Fréttablaðið greinir frá því í dag að 372 tonn af af kjöti og rengi af þeim 125 langreyðum sem Hvalur hf. veiddi á síðasta ári hafi verið send á Japansmarkaði á þessu ári, samkvæmt útfllutningstölum Hagstofu Íslands. 125 dýr skila um 1500 tonnum af hvalaafurðum, þ.e kjöti og rengi. Samkvæmt útflutningstölunum hefur því rétt tæplega fjórðungur verið seldur úr landi. Árni Finnsson, er formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, en hann segir að þetta kjöt hafi ekki skilað sér til Japans. „Samkvæmt nýjustu tölum frá Japan hefur ekkert af þessu kjöti verið flutt inn ennþá. Það getur verið að það sé í tolli í Japan, ég veit það ekki, en það hefur ekki verið flutt inn," segir Árni. Hann segir að 1.100 tonn séu í frystigeymslum hér á landi. Fjórðungur aflans í fyrra og áttatíu tonn á árinu 2008 hafi verið flutt út fyrir samtals átta hundruð milljónir króna. „Einar K. Guðfinnsson, sem var sjávarútvegsráðherra, veitti leyfi til hvalveiða í janúar 2009 og fullyrti við það tilefni að gjaldeyristekjurnar yrðu fimm milljarðar króna á ári, en við erum svolítið langt frá því," segir Árni. Hann segir að japanski markaðurinn sé mjög tregur og það útskýri sennilega hvers vegna ekkert hafi verið skráð innflutt þar enn, þótt útflutningsskýrslur hér á landi sýni 372 tonn. Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Hvals, gaf ekki færi á viðtali í morgun en staðfesti í samtali við fréttastofu að í frystigeymslum hér á landi væru 1.100 hundruð tonn af hvalaafurðum en að 372 tonn hefðu verið send til Japans. Hann sagði að afurðirnar væru sendar úr landi hægt og bítandi. Hann sagði að það væri ekki hægt að senda ellefu hundruð tonn á einu bretti til Japans, því það ynni enginn þannig. Hann kallaði fréttaflutning af þessum útflutningi „njósnastarfsemi" og sagði að menn í atvinnulífinu þyrftu að fá frið til að vinna.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Fleiri fréttir Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Sjá meira