Biður kröfuhafa afsökunar 5. júlí 2010 07:00 Kröfuhafar Glitnis eru mjög ósáttir vegna dóms Hæstaréttar í gengislánamálinu, að sögn formanns skilanefndar Glitnis.Fréttablaðið/Stefán „
Ég get ekki annað en beðið kröfuhafa afsökunar. Maður getur ekki verið stoltur þegar lagasetning á lánafyrirkomulagi sem hefur viðgengist í níu ár er dæmd ólögmæt,“ segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis. Skilanefndin hefur kannað réttarstöðu sína eftir dóm Hæstaréttar fyrir rúmum hálfum mánuði og hefur skoðað grundvöll þess að höfða skaðabótamál á hendur ríkinu vegna forsendubrests í samningum. Við flutning á eignum Glitnis til Íslandsbanka var ekki gert ráð fyrir kostnaði vegna ólögmætra gengistryggðra lána. Skilanefnd Kaupþings er í sömu sporum, að sögn fréttastofu Stöðvar 2. Skilanefnd Glitnis á 95 prósenta hlut í Íslandsbanka en skilanefnd Kaupþings á 87 prósenta hlut í Arion banka. Árni bendir á að kröfuhafar Glitnis hafi tapað á milli fimmtán hundruð til tvö þúsund milljörðum króna á falli bankans og séu mjög ósáttir. Skilanefndin hefur reiknað út hugsanlegan kostnað bankans í tengslum við dóm Hæstaréttar og miðast hann við ýmsar hugsanlegar niðurstöður. Árni segir erfitt að gefa upp tölur. Það geti orðið dýrkeypt komist Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að ólögmæt gengislán nái til íbúðalána og fyrirtækjalána og láti samningsvexti standa. - jab
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Fleiri fréttir Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Sjá meira