Samkynhneigðar stúlkur óánægðar með lífið Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. desember 2010 10:30 Stúlkur koma verst út úr rannsókninni.
Vísbendingar eru um að samkynhneigðir unglingar meti lífsánægju sína mun lakari en gagnkynhneigðir jafnaldrar þeirra gera. Lífsánægja samkynhneigðra stúlkna er síst. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar sem gerð var við Háskólann á Akureyri og birtist í nýjasta hefti Sálfræðiritsins sem kom út í vikunni. Um 2% stelpna og stráka í tíunda bekk sögðust hafa verið skotin í einhverjum af sama kyni en 2% stráka og 1% stelpna höfðu sofið hjá einhverjum af sama kyni. Stelpur sem sögðust hafa verið skotnar í öðrum stelpum reyndust óánægðari með lífið en aðrir hópar. Strákar sem höfðu sofið hjá öðrum strákum og stelpur sem hafa sofið hjá stelpum komu einnig verr út úr lífsánægjumælingunni. Rannsakendur segja að minni lífsánægja hjá samkynhneigðum unglingum skýrist að hluta til vegna þess að tengsl þeirra við skólann og foreldra séu lakari en tengsl gagnkynhneigðra unglinga við skóla og foreldra. Þá séu tengsl samkynhneigðra stráka við besta vin sinn lakari en tengsl gagnkynhneigðra stráka. Þetta skýri þó ekki allan muninn á lífsánægju unglinganna. Við rannsóknina voru notuð gögn úr íslenskum hluta alþjóðlegrar könnunar á heilsu og lífskjörum skólanema sem unnin er að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Helmingur allra nemenda í 10. bekk, næstum 2000 einstaklingar, svöruðu spurningalista þar sem sérstaklega var spurt um kynhneigð.
Mest lesið Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Innlent Fundu Guð í App store Erlent Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Innlent Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Innlent Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem eingangra sig félagslega Innlent Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Innlent Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Innlent „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Innlent Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Innlent Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Innlent Fleiri fréttir Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem eingangra sig félagslega Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Ekki eigi að stjórna borginni út frá „pólitískri kreddu“ Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi í vændum Mæður sem taka í vörina á meðgöngu og missáttir leigubílstjórar Björn strax hættur í íþróttaráði: „Þetta var bara prinsippmál“ SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Eins og löglærður forstjóri spítala væri að skera upp sjúklinga Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Eldur í ruslageymslu á Selfossi Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Ók á fimm til sex kyrrstæða bíla Næsta skref að tryggja að próf leigubílstjóra verði alfarið á íslensku „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Tilkynntur til lögreglu Flóamenn taka fálega í þreifingar Árborgara Óveðurský yfir Sólheimum og deilt á ríkisendurskoðanda Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Ekkert bólaði á ræðumanni Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Lýsti sjálfsvígshugsunum í pontu Alþingis Sjá meira