Innlent

Valgeir til liðs við Hreyfinguna

Varaþingmaðurinn Valgeir Skagfjörð er fyrrverandi formaður Borgarahreyfingarinnar.
Varaþingmaðurinn Valgeir Skagfjörð er fyrrverandi formaður Borgarahreyfingarinnar. Mynd/Valgarður Gíslason
Valgeir Skagfjörð, fyrrverandi formaður Borgarahreyfingarinnar, hefur lýst yfir stuðningi við Hreyfinguna og starfar nú með þinghópi hennar, að því er fram kemur í tilkynningu. Valgeir er varaþingmaður Þórs Saari.

Borgarahreyfingin fékk fjóra menn kjörna í þingkosningunum 2009. Þrír þeirra stofnuðu síðar Hreyfinguna og þá gekk Þráinn Bertelsson til liðs við VG eftir að hafa verið utan flokka um tíma.

„Ég óska sannarlega eftir því að það verði sættir og að þingmennirnir komi til okkar og sýni vilja til að starfa með okkar," sagði Valgeir í samtali við Vísi eftir að hann var kjörinn formaður Borgarahreyfingarinnar september á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×