Innlent

Lögreglan handtók mann rétt í þessu á Austuvelli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þúsundir manna eru samankomnir á Austurvelli.
Þúsundir manna eru samankomnir á Austurvelli.
Fátítt er að jafn margir komi saman á Austurvelli á sama tíma ef undan eru skildir hátíðisdagar. Fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis sem er staddur á staðnum segist sjaldan hafa séð jafn margt fólk á sama tíma. Lögreglan var rétt í þessu að handtaka mann við þinghúsið en fréttastofa hefur ekki upplýsingar um það hvers vegna hann var handtekinn. Mótmælendur púa á lögreglumenn.

Á meðan að fólkið mótmælir úti ræða þingmenn um framtíð landsins. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fjármálaráðherra, talar um réttláta reiði og gremju almennings. „Skilaboðin sem berast hér á Austurvelli fara ekki á milli mála," sagði Steingrímur í ræðustól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×