Segir ómögulegt að Novator hefði getað hagnast á krónuhruni Hafsteinn G. Hauksson skrifar 24. október 2010 18:40
Í minnisblaði sem bankaráðsmönnum Landsbankans var sent árið 2006 er fullyrt að Novator taki 50 milljarða skortstöðu í íslensku krónunni. Heiðar Már Guðjónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Novators, segir þrátt fyrir það ljóst að Novator hefði aldrei getað hagnast á falli krónunnar. Novator og Heiðar Már hafa verið talsvert í sviðsljósinu undanfarna viku vegna tölvupósta sem DV hefur birt, og eru sagðir sýna að Heiðar hafi ætlað sér að græða á falli krónunnar með stöðutöku, og beinlínis skipulagt árás á gjaldmiðilinn með aðstoð erlendra fjárfesta. Þessu hefur Heiðar staðfastlega neitað og lýst því yfir að hvorki hann né Novator hafi tekið stöðu gegn krónunni, meðal annars í kvöldfréttum Stöðvar 2. Í minnisblaði um ástand hagkerfisins sem Heiðar samdi að hluta og sent var lykilmönnum í Landsbankanum í ársbyrjun 2006, er hins vegar fullyrt að Novator taki 50 milljarða skortstöðu í krónunni. Heiðar segir að þarna sé vísað til afleiðusamninga, sem hefðu hækkað í verði ef krónan hefði veikst. Þannig hafi fyrirtækið viljað tryggja sig gegn gengisfalli, þar sem Novator átti mikið af íslenskum eignum sem fjármagnaðar voru erlendis, og hefðu því tekið á sig högg við gengisfall. „Ef þú átt hús upp á 500 milljarða og þú kaupir tryggingu fyrir hluta þess, segjum 50 milljarða, þá kveikirðu samt ekki í húsinu. Í þessu tilfelli er það þannig að ef Novator kaupir afleiður, eða gengisvarnir, fyrir lítinn hluta af stórum eignum sínum á Íslandi, þá er ekki nokkur leið fyrir hann að græða á slíku," segir Heiðar. Heiðar segir að eignir Novators innanlands hafi verið tífalt meiri en það sem í minnisblaðinu er kallað skortstaða, og því hafi hrein staða fyrirtækisins verið með krónunni. En gat Novator þá grætt á hruni krónunnar? „Nei, á engan hátt. Okkar hagsmunir lágu með Íslandi í þessu. Við áttum hér eignir sem við ætluðum ekki að selja, og við ætluðum ekki að reyna að koma á einhverjum óróleika. Þess vegna voru það ekki hagsmunir okkar að neitt slíkt gæti hent." Í minnisblaðinu sem bankaráðsmönnum og stjórnendum Landsbankans var sent fyrir tæpum fimm árum var varað við því að íslenska hagkerfið væri í ójafnvægi, og leiðrétting væri óhjákvæmileg.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira