Innlent

30 sagt upp hjá Háfelli

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Starfsmenn við Héðinsfjarðargöngin.
Starfsmenn við Héðinsfjarðargöngin.

Um þrjátíu manns hefur verið sagt upp hjá verktakafyrirtækinu Háfelli síðustu mánuði þegar líða tók að lokum Héðinsfjarðarganga sem Háfell hefur unnið við.

Framkvæmdastjóri fyrirtækisins gagnrýnir að næstu gangaverk skuli ekki vera tilbúin, það þýði að mikil þekking og sérhæfð tæki glatist.

Hundruð manna hafa unnið frá árinu 2006 við gerð Héðinsfjarðarganga sem opnuðu nú um helgina. Verkið var unnið í samstarfi tékkneska fyrirtækisins Metrostav og Háfells.

Þegar mest var voru 60-70 starfsmenn Háfells að vinnu við göngin og allt þetta ár hefur fyrirtækið verið að búa sig undir að verkinu færi að ljúka - og þurft að segja upp um 30 manns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×