Innlent

Geir Jón vonar að mótmælin fari vel fram

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vonar að fyrirhuguð mótmæli fyrir utan Alþingi í kvöld fari vel fram. Lögreglan er með mikinn viðbúnað á Austurvelli þar sem búist er við fjölmennum mótmælum í kvöld. Varnargirðing var reist um þinghúsið seinnipartinn.

„Þetta er gert til þess að veita lögreglumönnum og mótmælendum öryggi. Við erum að vonast til þess að það komi ekki til þess að einhver reyni að ráðast á lögreglumenn og það skapi átak. Við þekkjum það. Það hefur gerst hérna. Við erum að skapa svæði fyrir mótmælendur til að mótmæla og við getum unnið hér fyrir innan og haft þetta svæði fyrir okkur," segir Geir Jón.

Hann vill ekki segja til um hvort allt tiltækt lögreglu verði í startholtunum. „Það verða væntanlega nægjanlega margir til að takast á við þau verkefni sem bíða okkar. Við rennum blint í sjóinn með það en við reynum alltaf að vera eins vel undirbúnir undir hvert verkefni sem við tökum að okkur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×