Ríkissaksóknari: Hættulegar hausaveiðar í kynferðisbrotamálum Erla Hlynsdóttir skrifar 4. október 2010 14:05 Valtýr Sigurðsson segir umræðuna um kynferðisbrotamál vera orðna hættulega Mynd: Pjetur
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segist undrandi á yfirlýsingu Femínistafélags Íslands þar sem hann er vændur um að skorta skilning á eðli nauðgana og sé hreinlega óhæfur til að gegna starfi sínu. „Viðbrögð þeirra kvenna sem standa að baki þessarar yfirlýsingu koma mér á óvart og hljóta að vera umhugsunarefni ekki síst fyrir þær sjálfar og málstaðinn. Ég hef haft mikinn áhuga á þessum málaflokki ekki síst sem dómari um árabil. Í því starfi sem og í starfi ríkissaksóknara tel ég mig hafa unnið samkvæmt lögum og viðurkenndum sjónarmiðum," segir Valtýr. Femínistafélagið sendi yfirlýsinguna frá sér vegna ummæla Valtýs í viðtali við DV um kynferðisbrot. „Í viðtali við mig kemur ýmislegt fram sem ætti að vera viðkomandi konum að skapi. Ekkert slíkt er virt heldur aðeins það sem þær telja ekki fara heim og saman við sjónarmið þeirra. Ákæruvaldinu ekki síður en dómurum ber hins vegar alltaf að líta á báðar hliðar og vega og meta sönnunargögn málsins. Það eru ákveðnar leikreglur sem ákæruvaldinu ber að fara eftir. Yfir þetta fór ég í viðtalinu," segir Valtýr. Valtýr segir að starfsfólki embættis ríkissaksóknara sé mjög undrandi á þessum viðbrögðum Femínistafaélagsins. „Þetta eru sorgleg viðbrögð og ekki líkleg til að koma þessum málum í eðlilegan farveg," segir hann. „Eftir hrun bankanna var vilji til að skapa nýtt samfélag. Samfélag þar sem allir gætu óttalaust sagt sínar skoðanir. Allar ákvarðanir væru teknar eftir upplýsta umræðu. Eins og menn hafa orðið vitni að hefur þetta mistekist hrapalega. Aldrei fyrr hefur verið hættulegra en nú að segja skoðanir sem ákveðin öfl telja sér andsnúin. Aldrei áður hafa aðrar eins hausveiðar og hreinsanir átt sér stað og skoðanaskipti verið hættulegri. Þetta er ástand sem mér hugnast ekki. Nýlega var Björgin Björgvinsson yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu látinn breyta um starfsvettvang eftir að hafa tjáð sig í viðtali um þessi mál. Allir sem til þekkja vita að Björgvin hefur unnið frábært starf við uppbyggingu kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Ekkert tillit var tekið til þess," segir Valtýr. Hann tekur fram að þetta hafi honum að sjálfsögðu verið ljóst áður en hann samþykkti að gefa blaðamanni DV kost á því að kynnast starfi ríkissakskóknara. „Ég taldi það skyldu mína að gefa þeim sem áhuga höfðu á þessum málum tækifæri á að ræða þau út frá ákveðnum staðreyndum og veruleika. Fari mál fyrir dóm er niðurstaðan birt hvort sem um sakfellingu eða sýknu er að ræða og hafa margir stefnumarkandi dómar hafa fallið eftir að breytingar voru gerðar á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga árið 2007. Hins vegar er ekki vitað hvernig unnið er með mál sem ekki er ákært í. Úr þessu vildi ég bæta," segir Valtýr. Hann telur að viðbrögð á borð við þau sem Femínistafélagið sýnir nú verði til þess að fólk hætti sér ekki til að ræða opinberlega um kynferðisbrotamál. Valtýr ítrekar að hann virði skoðanir Guðrúnar Jónsdóttur og það góða starf sem fram fari hjá Stígamótum sem og öðrum er koma að kynferðisbrotamálum. „Ég hef í viðræðum við hana bent að við hjá embætti ríkissaksóknara værum samherjar en ekki andstæðingar í baráttunni við að koma lögum yfir sakamenn í kynferðisbrotamálum. Við vinnum hins vegar eftir mismunandi sjónarmiðum, þær fá til sín þolendur kynferðisbrota og einbeita sér eingöngu að því, það ber að virða. Það sem nú er í gangi er ekki eitthvað sem ég sagði . Nú er það umræðan sem er hættuleg," segir hann.
Tengdar fréttir Femínistafélagið segir ríkissaksóknara óhæfan Femínistafélag Íslands telur ríkissaksóknara óhæfan til að gegna starfi sínu. „Eftir ummæli hans hefur orðið alvarlegur trúnaðarbrestur milli hans og almennings, ekki síst þess fólks sem á að geta leitað réttar síns ef á því er brotið," segir í tilkynningu sem félagið hefur sent frá sér vegna ummæla Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara í viðtölum við DV um kynferðisbrot. Þar segir að Valtýr sé ekki starfi sínu vaxinn og að hann sýni mikið skilningsleysi á eðli nauðgana. 4. október 2010 11:37 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Femínistafélagið segir ríkissaksóknara óhæfan Femínistafélag Íslands telur ríkissaksóknara óhæfan til að gegna starfi sínu. „Eftir ummæli hans hefur orðið alvarlegur trúnaðarbrestur milli hans og almennings, ekki síst þess fólks sem á að geta leitað réttar síns ef á því er brotið," segir í tilkynningu sem félagið hefur sent frá sér vegna ummæla Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara í viðtölum við DV um kynferðisbrot. Þar segir að Valtýr sé ekki starfi sínu vaxinn og að hann sýni mikið skilningsleysi á eðli nauðgana. 4. október 2010 11:37