Tvö hundruð manns leituðu um helgina 4. október 2010 05:30 Andrés fékk 600.000 króna rannsóknarstyrk í júní sem hann hefur enn ekki leyst út.
Rúmlega 200 björgunarsveitar- og lögreglumenn leituðu að Andrési Tómassyni um helgina. Andrés hefur verið týndur í tíu daga og sást síðast til hans föstudaginn 24. september. Andrés fékk 600 þúsund króna rannsóknarstyrk í júní frá Landssamtökum lífeyrissjóða fyrir meistaraprófsritgerð við Háskóla Íslands, sem hann vinnur að. Ritgerðin snýr að áhrifum efnahagshrunsins á lífeyrissjóðina hér á landi og hefur Andrés ekki leyst styrkinn út. Um sjötíu leitarhópar frá sautján björgunarsveitum leituðu í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, Borgarfirði og Reykjanesi auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar flaug meðfram ströndum, götum og bryggjum en án árangurs. Bíll Andrésar, ljósbrúnn Suzuki Grand Vitara frá 2003 með bílnúmerið LZ-195, er einnig horfinn og hefur lögreglan engar vísbendingar fengið frá almenningi þrátt fyrir ítarlegar beiðnir. Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri og stjórnandi leitarinnar, segir óvenjulegt að ekkert spyrjist til fólks í svona langan tíma hér á landi. Hann segir mikilvægast fyrir leitarmenn að finna bílinn því í raun gæti Andrés verið hvar á landi sem er. „Þetta er svolítið nýtt fyrir okkur. Nauðsynlegast er að hugsa og átta sig á hlutunum og gefa sér engar forsendur," segir Ágúst. „En það er skýring á öllu." Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur fólk til að athuga vel sitt nærumhverfi, svo sem kjallaratröppur, bílskúra og fleira og láta lögreglu vita ef sést hefur til Andrésar eða bifreiðar hans. - sv
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira