Innlent

Hrottaleg árás í Hveragerði - vilja framlengja varðhald

Enn er unnið í máli manns sem réðist á unga konu í Hveragerði fyrir viku en hann er grunaður um að hafa slegið hana með hnúajárni. Gæsluvarðhald rennur út í dag en farið verður fram á framlengingu.

Maðurinn, sem er á fertugsaldri réðst inn á heimili fyrrverandi unnustu sinnar í Hveragerði og er hann grunaður um að hafa veitt henni alvarlega höfuðáverka en lögreglan lýsti aðkomunni á vettvangi þannig að herbergið sem konan var í, hafi verið alblóðugt.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands segir að það sé ljóst af ummerkjum á vettvangi að um hrottafengna árás hafi verið að ræða. Þá hafi hending ein ráðið því að ekki hlaust mannsbani af árásinni.

Maðurinn var handtekinn við Rauðavatn eftir árásina. Þá var hann í blóðugri peysu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×